Jóla-Kraftaverk ? Eða hvað finnst ykkur?

Ég fékk símtal í gsminn minn klukkan 04:00 í nótt. Það var amerísk kona, hjúkrunarkona á spítala, sem var svo óðmála að ég, þrátt fyrir að tala mjög góða ensku, varð að biðja hana um að tala hægar svo ég skildi hana. Það var hringt í mig vegna þess að númerið mitt var það eina sem var í símanum hennar Jacky Lynn!!!

Hér koma svo stórtíðindin:

Jacky Lynn var í bíl á leið til áfangastaðar sem hún ætlaði að fara á þegar ég heyrði í henni síðast. Það var alveg crazy veður og það gekk eitthvað hægt skildist mér. Hún sendi mér amk 10 sms á leiðinni en svo kom ekkert meira.

Ástæðan kom í ljós í nótt. Hún lenti í geysihörðum árekstri við tvo aðra bíla !! Eins og konan í símanum sagði, þá "Keyrði annar bíll aftan á hana á freeway-inum, svo hún kastaðist á bíl sem var stopp í bylnum" Hún er talsvert slösuð.... en mun ná sér að fullu.

 Ég fékk nánari útskýringar en vil helst ekki ræða það hér þar sem mér finsnt það vera hlutverk Jackyar að útskýra það Blush

Svo fæ ég að hringja í hana í dag og ætlað auðvitað að gera ´það. Þá mun ég væntanlega fá fleiri hluti staðfesta beint frá henni.

Ég er í smásjokki hér eftir þetta enda búinn að búa mig undir að flytja "öðruvísi" fréttir hér á síðunni hennar Jacky Lynn. Ég er bara ofsalega glaður að það var tekið svona illilega í taumana og segi það hér fullum fetum Jacky mín, a ð ég trúi núna á kraftaverk !!!!

Mínar allra bestu kveðjur til lesenda hennar Jackyar

Staðgengill


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga skjol

Elsku elsku elsku Jacky Lynn mín. Guð gefi að þú náir þér að fullu, af þessu finnst mér ég megi lesa útúr því að þinn tími er ekki komin og vona ég það af öllu hjarta að þú verðir með okkur sem lengst.

Í gær vissi ég ekki hvort ég ætti að senda þér afmæliskveðju en í dag geri ég það.

Elsku vina innilega til hamingju með daginn í gær og megi þú ná bata sem allra fyrst.

Og þar sem ég get ekki gefið þér risaknús in real life þá sendi ég þér eitt í viðbót hérna á blogginu.

((((((((((((((((((((((((((((( RISA KNÚS ))))))))))))))))))))))))))))))))))

Helga skjol, 27.12.2008 kl. 09:30

2 Smámynd: Sigríður  Ágústa Þórólfsdóttir

Elsku Jacky Lynn ég veit að Guð er að senda þér skilaboð með þessu slysi,hann var að gefa þér lífið í afmælisgjöf kæra vinkona,hjartanlega til hamingju,ég vona og bið að þú náir þér að fullu og getir sjálf sagt okkur jafnvel enn betri fréttir fljótlega,kærleiksknús bæði á þig og staðgengilinn þinn sem er búinn að standa sig með prýði

Sigríður Ágústa Þórólfsdóttir, 27.12.2008 kl. 09:57

3 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Ég kem nú ekki auga á kraftaverkið hér. Geturðu útskýrt það betur?

Jón Steinar Ragnarsson, 27.12.2008 kl. 10:02

4 Smámynd: Gudrún Hauksdótttir

Tegar kraftaverkin gerast verdum vid ávallt svo glöd.Okkur ber líka skylda ad bera virdingu fyrir nýju tækjifæri og nota tad.Elsku Jacky Linn bid gud um ad tú náir tér eftir slysid og ad tetta nýja tækjifæri í lífi tínu beri tér ljósvakann.Ljósvakann til betra lífs og tá fæ ég kannski tækjifæri til ad kynnast tér betur mín kæra.Mikid yrdi ég glöd med tad .

Hjartanskvedja tíl tín og til stadgengils tíns sem ég met mikils ad hafa tekid sögu tína ad sér.

Ykkar 

Gudrún

Gudrún Hauksdótttir, 27.12.2008 kl. 11:18

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband