Hrærð
7.10.2008 | 07:12
Ég fékk afar falleg skilaboð frá æðislegri konu. Ég er viss um að ef aðstæður hefðu verið öðruvísi, þá hefði ég glaðlega lagt í 10 tíma ferðalag til að heimsækja hana í landið þar sem að hún býr.
Takk fyrir fallegt og innilegt boð kæra Jyderupdrottning. Ég fékk tár í augun þegar ég las þau. Ég held að ég gæti samt ekki treyst mér til að hitta neinn af því fólki sem raunverulega veit fyrirætlanir mínar. Það yrði einfaldlega of erfitt fyrir mig. Þó ég sé með klakabrynju gagnvart lífinu, er ég í raun afar viðkvæm sál. Enn og aftur, takk kæra.
Ég er of þreytt núna til að blogga meira en ætla að setja inn smá atburðarrás í fyrramálið þegar ég vakna. Góða nótt
Jacky Lynn
Athugasemdir
Mér svona datt í hug hvort að það væri ekki allt í lagi að verða skotin í frakkamanninum.
Heiður Helgadóttir, 8.10.2008 kl. 06:24
Knús á þig mín kæra!!!
Berglind Nanna Ólínudóttir, 8.10.2008 kl. 09:22
Kæra Jackylynn smá orð til þín frá mér. Ég veit að ég hef gatslitið sál minni og þrælað huganum út uns hann er orðinn að auðn ,meðan ég af veikum mætti hef reynt að halda mínum hlut í hringiðju menningarlífsins. En ég veit nú að það voru mistök. Fegurðin er ávallt hjá okkur og skeytir ekki um framabrölt okkar.Fegurðin er ævarandi þrátt fyrir óendanlegan breytileika hennar og það hve óáþreifanleg hún er.
godir vaettir (IP-tala skráð) 8.10.2008 kl. 23:38
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.