Bónorð :)

Peter fór niður á annað hnéð, dró upp þennan líka fallega demantshring og bað mín í gær !

Hann var svo skelfilega órólegur í fyrradag að ég átti allt eins von á því að hann væri að fara að segja mér að hann hefði ekki lengur áhuga á að vera í sambandi með mér. Ég fann að eitthvað var að fara að gerast en bara vissi ekki hvað.... svo kom þetta bónorð eins og þruma úr heiðskíru lofti :)

Ég hikaði ekki eitt augnablik heldur játtist honum með það sama.

Jacky Lynn


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Kæra Jacky Lynn.

Innilegar hamingjuóskir með fæðingu tvíburanna þinna og bónorðið frá Peter.  Ég vona innilega að allt gangi að óskum hjá ykkur og að þú náir heilsu þína aftur.
Það er ekki skrýtið þó þú upplifir pirring og óánægju, þú ert á sterkum lyfjum og svo til nýbúin að eiga tvö börn, sumun finnst nóg að sinna einu barni á næturnar en þú hefur tvö börn til að sinna.

Gangi þér og Peter sem allra allra best og Guð veri með ykkur.

Allra bestu kveðjur,
Nína Margrét - fyrrv. bloggvinur þinn.  

Nína Margrét Perry (IP-tala skráð) 9.7.2009 kl. 20:51

2 Smámynd: Sigríður  Ágústa Þórólfsdóttir

Sigríður Ágústa Þórólfsdóttir, 11.7.2009 kl. 22:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband